Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Mögnuð verðlaunamynd sem segir sögur fimm bandarískra ungmenna sem þurftu að þola mikið einelti og hvernig sum þeirra tókust á við það á meðan önnur buguðust. Ofbeldi það gagnvart fólki sem felst í einelti er gríðarlegt vandamál sem árlega bitnar á milljónum, oft með skelfilegum afleiðingum fyrir þá sem fyrir því verða og fjölskyldur þeirra.

Hér er komin mynd sem í raun ætti að vera skylduverkefni að sjá því baráttan gegn eineltinu felst fyrst og fremst í uppfræðslu og skilningi, bæði þeirra sem beita því, oft án þess að vita hvað þeir eru að gera, og annarra. Mikilvægt er að sem flestir geti greint slíkt ofbeldi strax í byrjun og vonandi lagt sitt af mörkum til að stöðva það í fæðingu. Það er nefnilega svo að margir sem verða vitni að einelti misskilja það sem „eðlilega“ stríðni eða strákapör, sérstaklega þegar börn og unglingar eiga í hlut, án þess að gera sér nokkra grein fyrir afleiðingum þess fyrir fórnarlambið. Þess háttar misskilningur skapar afskiptaleysi og jafnvel óbeina þátttöku sem getur í raun verið jafnskaðleg og ofbeldið sjálft. Einelti er ekki einkamál gerenda og þolenda, heldur samfélagsmein sem allt fólk á öllum aldri þarf að taka höndum saman við að stöðva.

Í tengslum við þessa mynd hefur verið opnuð alveg einstaklega upplýsandi vefsíða á www.thebullyproject.com sem allir ættu að kynna sér og hjálpa öðrum að kynnast, til dæmis með því að deila henni á Facebook og öðrum samskiptavefjum. Hér með er skorað á alla Íslendinga að sjá þessa mögnuðu mynd og láta sig málið varða.

Tegund
Heimildarmynd
Tungumál
Enska
Lengd
98 min
Frumsýnd
27/04/12
7

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class