The Raid
Djúpt í iðrum fátækrahverfis í Djakarta liggur órjúfanleg bygging sem hýsir hættulegustu glæpamenn í heimi. Sérsveitarliði lögreglunnar er falið að gera áhlaup á húsið í skjóli nætur og uppræta eiturlyfjahöfðingjann sem fer með völdin í húsinu. Þegar sveitin uppgötvast fyrir slysni berast fréttir af áhlaupi þeirra til höfðingjans og í kjölfarið slokkna ljósin og útgönguleiðir lokast. Nú er sérsveitin föst á sjöttu hæð hússins með enga undankomuleið í sjónmáli og með hættulegustu glæpamenn borgarinnar á hælum sér.
Leikstjóri: Gareth Evans
Handrit: Gareth Evans
Leikarar: Iko Uwais, Ananda George & Ray Sahetapy
| Tegund Hasarmynd |
Tungumál Enska |
Lengd 101 min |
Frumsýnd 04/05/12 |
![]() |



