Piranha 3DD er sjálfstætt framhald myndarinnar Piranha 3D og er skemmtileg blanda af gríni, spennu og vel tenntum fiskum. Eins og þeir muna sem sáu fyrri myndina þá olli jarðskjálfti því að stórar glufur mynduðust í botni Viktoríuvatns með þeim afleiðingum að hinir forsögulegu piranha-fiskar tóku að streyma upp í vatnið. Þeir átu allt sem hreyfðist og því miður fyrir suma strandgestina þá lentu þeir á matseðlinum. En ef einhver hélt að vandinn hefði verið leystur þá kemur annað í ljós þegar fiskakvikindunum tekst einhvern veginn að komast inn í vinsælan vatnsskemmtigarð þar sem hundruð manns eru saman komin til að gera sér glaðan dag. Enn á ný kemur til kasta lögreglustjórans Fallons að finna leið til að hemja þennan ófögnuð áður en hann étur alla gestina og skemmir ekki bara fjölskyldustemninguna heldur setur allt efnahagslíf strandbæjarins á hliðina. Þeir Ving Rhames og Christopher Lloyd eru þeir einu af aðalleikurum fyrri myndarinnar sem snúa aftur í framhaldinu. Í stað þeirra Elizabeth Shue og Richards Dreyfuss koma nú m.a. þau Katrina Bowden (valin kynþokkafyllsta kona veraldar 2011 af tímaritinu Esquire), Danielle Panabaker og Gary Busey auk þess sem gamli góði David Hasselhoff leikur sjálfan sig í myndinni. Myndin var tilnefnd til verðlauna sem besta hrollvekjan á Teen Choice-kvikmyndahátíðinni í Kaliforníu síðastliðið sumar.
Leikstjóri: John Gulager
Handrit: Marcus Dunstan & Patrick Melton
Leikarar: Danielle Panabaker, Ving Rhames & David Hasselhoff
| Tegund Hryllingsmynd |
Tungumál Enska |
Lengd 83 min |
Frumsýnd 13/06/12 |
![]() |


