Killer Joe er kolsvartur spennutryllir frá leikstjóranum William Friedkin (The Exorcist, The French Connection), og skartar Emile Hirsch, Matthew McConaughey og Juno Temple í aðalhlutverkum. Chris (Hirsch) er í hárri fíkniefnaskuld við glæpaforingjann Digger Soames (Macaulay), og sér ekki nema eina leið úr vandanum: með því að ráða leigumorðingja til þess að koma móður sinni fyrir kattarnef, og fá líftryggingu hennar, sem nemur 50.000 dölum, greidda til systur sinnar, Dottie (Temple). Hann ræður lögreglumanninn og leigumorðingjann Joe Cooper til verksins, en Chris hefur ekki efni á fyrirframgreiðslunni sem Joe heimtar af honum. Hann ákveður því að taka Dottie í gíslingu þangað til að hann fær upphæðina greidda. En öllum að óvörum tekst einkennilegur vinskapur með Joe og Dottie, og ráðagerðir Chris virðast ætla úr böndunum verði ekki tímanlega í taumana gripið.að er um seinan.
Leikstjóri: William Friedkin
Handrit: Tracy Letts & Tracy Letts
Leikarar: Matthew McConaughey, Emile Hirsch & Juno Temple
| Tegund Spennumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 103 min |
Frumsýnd 01/08/12 |
![]() |



