Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Gættu þín á geimverunum! Fjórir nágrannar í dauflegu úthverfi ákveða að stofna nágrannavörslu, aðallega til að geta komist út á kvöldin. Það eru stórleikarnir Ben Stiller, Vince Vaughn, Jonah Hill ásamt Richard Ayoade sem leika nágrannana Evan, Bob, Franklin og Jamarcus, en þeir hafa hver um sig sína eigin ástæðu til að vilja sleppa út af heimilum sínum á kvöldin, eða a.m.k. eitt kvöld í viku. Evan (íslandsvinurinn Ben Stiller) er nýjastur í hverfinu og fær hugmyndina að nágrannavörslunni. Hann fær hina þrjá í lið með sér og til að þykjast vera í þessu af fullri alvöru fá þeir sér sérstaka búninga, láta hanna fyrir sig merki og sérmerkja bíl til vörslunnar þannig að allt líti sem vígalegast út. Það færist hins vegar alvara í málið þegar félagarnir fjórir uppgötva fyrir tilviljun að óvinveittar geimverur hafa hreiðrað um sig í hverfinu og eru smám saman byrjaðar að yfirtaka það. Þar með fær nágrannavarslan nýjan tilgang og það kemur í hlut fjórmenninganna að forða okkur hinum frá útrýmingu í þessari stórskemmtilegu gamanmynd.

Leikstjóri: Akiva Schaffer
Handrit: Seth Rogen & Evan Goldberg
Leikarar: Ben Stiller, Vince Vaughn & Jonah Hill

Tegund
Gamanmynd
Tungumál
Enska
Lengd
101 min
Frumsýnd
15/08/12
1

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class