- Þú ert hér »
Borgarbíó Akureyri
Borgarbíó Akureyri er búið 2 kvikmyndasölum og tekur rúmlega 300 manns í sæti, en við það vinnur á annan tug starfsfólks. Kvikmyndahúsið er eitt fárra frumsýningabíóa utan höfuðborgarinnar og var stofnað fyrir miðja síðustu öld og er því líklega eitt elsta kvikmyndahús á landinu.
Kvikmyndahúsið hefur verið leiðandi meðal kvikmyndahúsa á landsbyggðinni, enda var það lengi vel eina fjölsala-kvikmyndahúsið utan Reykjavíkur og einnig það stærsta.
Borgarbíó
Hólabraut 12, 600 Akureyri
Sími: 462 3500
Netfang: borgarbio@borgarbio.is
Opnunartími miðasölu
Mánudaga - sunnudaga: 30 mínútum fyrir fyrstu sýningu dagsins


