- Þú ert hér »
Borgarleikhúsið
Leikfélag Reykjavíkur er eitt elsta starfandi menningarfélag á Íslandi, stofnað 11. janúar 1897 er tveir hópar áhugamanna um leiklist sameinuðust í eitt félag. Helsti hvatinn að stofnun félagsins var bygging Iðnaðarmannahússins við Tjörnina. Félaginu var falin varðveisla eigna Kúlissusjóðsins svonefnda, sem var myndaður af aðgangseyri hinna fyrstu opinberu leiksýninga í Reykjavík 1854. Leikfélag Reykjavíkur starfaði óslitið í Iðnó þar til árið 1989 er öll starfsemi félagsins fluttist í nýtt leikhús, Borgarleikhúsið, sem Reykjavíkurborg byggði í samvinnu og samráði við Leikfélag Reykjavíkur.
Vorið 1963 var lögum Leikfélags Reykjavíkur breytt og stefna tekin í þá átt að gera Leikfélagið að atvinnuleikhúsi, en Þjóðleikhús var stofnað árið 1950. Helstu breytingar fólust í skipun fimm manna leikhúsráðs og nýrri stöðu leikhússtjóra, er ráðinn skyldi til þriggja ára í senn af aðalfundi félagsins en samkvæmt tilnefningu stjórnar. Leikhúsráð var skipað þriggja manna stjórn Leikfélagsins, leikhússtjóra og fulltrúa borgarstjórans í Reykjavík. Sá háttur var hafður á þangað til nýr samningur við Reykjavíkurborg gekk í gildi, 11. janúar árið 2000, en samkvæmt honum er það 3 manna stjórn Leikfélags Reykjavíkur sem ber ábyrgð á rekstri leikhússins. Stjórnin ræður leikhússtjóra og framkvæmdastjóra.
Borgarleikhúsið
Listabraut 3, 103 Reykjavík
Sími: 568 8000
Netfang: midasala@borgarleikhus.is
Opnunartími miðsaölu
Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
Miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga: 10:00 - 20:00
Laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00


