- Þú ert hér »
Concert
Concert er reynslumesta og þekktasta tónleikafyrirtæki landsins. Það hefur staðið fyrir innflutningi á heimsþekktum stjörnum á borð við Chris Cornell, Josh Groban, Joe Cocker, Sugababes, Snoop Dogg, Van Morrison, Lou Reed, Katie Melua, Katherine Jenkins, Jose Carreras, Kiri Te Kanawa, Diana Krall, Deep Purple, Uriah Heep, Jarvis Cocker, Marianne Faithfull, Patti Smith, Sissel Kjirkebo, The Shadows, Alice Cooper og Ray Davies.
Concert tekur einnig að sér að skipuleggja atburði fyrir ýmsa aðila og má þar nefna Live8, Íslensku tónlistarverðlaunin og 25 ára afmælistónleika Kaupþings, sem fram fóru á Laugardalsvelli 17. ágúst 2007 og teljast stærstu tónleikar íslandssögunnar.
Auk þess rekur Concert stærstu umboðsskrifstofu landsins, en þar er hægt að bóka alla helstu listamenn þjóðarinnar á uppákomur og atburði af hvaða tagi sem er.
Concert
Skeifunni 17, 108 Reykjavík
Sími: 511 2255, Fax: 591 5101
Netfang: concert@concert.is


