- You are here »
Deep Purple and Uriah Heep

Miðasala á sameiginlega stórtónleika DEEP PURPLE og URIAH HEEP hefst fimmtudaginn 1. mars kl. 10:00 á www.midi.is, í verslunum Skífunnar í Reykjavík og í verslunum BT í Hafnarfirði, á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Annars vegar verður selt í númeraða stúku og hins vegar stæði og eru verðin sem hér segir: Stæði: 4.900 kr. Númeruð stúka: 9.900 Aðeins eru um 1.000 númeruð stúkusæti í boði. Tónleikarnir fara fram hvítasunnuhelgina, nánar tiltekið sunnudaginn 27. maí í Laugardalshöllinni og er frídagur daginn eftir tónleikana. DEEP PURPLE hefur selt fleiri tónleikamiða hérlendis en nokkur önnur hljómsveit og þegar önnur goðsagnakennd rokksveit á borð við URIAH HEEP bætist við dagskrána er öruggt að slegist verður um hvern miða. Það að tvær jafn stórar sveitir spili saman á tónleikum á sér varla hliðstæðu hérlendis og nokkuð ljóst að rokkunnendur eiga ógleymanlegt kvöld í vændum.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.05.07 - Sunday | 20:00 | Deep Purple og Uriah Heep - Tónleikar | Laugardalshöll - Stúka | Concert | 9.900 kr. |
| 27.05.07 - Sunday | 20:00 | Deep Purple og Uriah Heep - Tónleikar | Laugardalshöll - Stæði | Concert | 4.900 kr. |


