- You are here »
Josh Groban

Sadly this information does not exist in your language.
Uppselt varð á innan við 4 mínútum þegar opnað var fyrir miðasöluna og því hefur verið bætt við aukatónleikum sem fara fram 15. maí Laugardalshöll.
Um sannkallaða stórtónleika er að ræða því með Groban í för verður hans eigin hrynsveit og auk þess koma fram með honum bæði strengjasveit og Gospelkór Reykjavíkur.
Groban er listamaður sem á sér engan líka. Hann er í grunninn klassískur söngvari en hefur náð alheimshylli með því að tvinna sína stórkostlegu og fjölhæfu barítóna rödd við kraftmikla melódíska popptónlist. Groban segist líta upp til tónlistarmanna sem hafa farið ótroðnar slóðir og nefnir þar til sögunnar Radiohead, Paul Simon, Sting, Peter Gabriel og Björk. Þegar kemur að söng lítur hann á það sem frumskyldu sína að segja sögur með lögunum og meðal áhrifavalda þar má nefna Mandy Patinkin, Klaus Nomi, George Hearn og Luciano Pavarotti. Með því að fara sjálfur ótroðnar slóðir, þora að sækja innblástur sinn víða að, blanda saman ólíkum stefnum og leyfa sínum óviðjafnanlegu hæfileikum að njóta sín hefur hann skapað sér sérstöðu í tónlistarheimi samtímans og skapað sér sinn eigin sess, þar sem hann fyrirhafnarlaust tengir saman heim klassíkurinnar og poppsins.
Húsið opnar kl. 19
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 15.05.07 - Tuesday | 20:00 | Josh Groban - Aukatónleikar | Laugardalshöll | Concert | 12.900 kr. / 9.900 kr. |
| 16.05.07 - Wednesday | 20:00 | Josh Groban - Tónleikar - Uppselt | Laugardalshöll | Concert | 12.900 kr. / 9.900 kr. |


