Skid Row

Sadly this information does not exist in your language.
Netsölu er lokið en sala verður við inngang
Bandaríska rokk hljómsveitin Skid Row hefur staðfest komu sína til Íslands 1. desember nk. Tónleikarnir á NASA verða þeir síðustu í fjögurra vikna Evrópuferð Skid Row.
Það er hljómsveitin SIGN sem býður rokkhetjunum að spila með sér á NASA. SIGN hita upp á tveggja vikna Bretlandstúr hjá SKID ROW sem fram fer 13. - 25. nóvember nk. en þau tengsl urðu til þess að Ragnar Zólberg og félagar notuðu tækifærið til að bjóða sveitinni til Íslands.
Skid Row var stofnuð í New Jersey árið 1987. Fyrir tilstuðlan Jon Bon Jovi náði hljómsveitin samningi við Atlantic Records og árið 1989 kom út fyrsta platan sem hét Skid Row og seldist í yfir 5 miljónum eintaka í Bandaríkjunum. Á samnefndri plötu eru t.a.m. lögin 18 and life og Youth Gone Wild. Árið 1992 kom svo út platan Slave To The Grind og fór hún í fyrsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum. Var það í fyrsta skipti sem þungarokks hljómsveit náði þeim árangri. Árið 1995 kom síðan út platan Subhuman Race. Skömmu síðar var Sebastian Back látinn taka poka sinn og héldu margir að dagar sveitarinar væru taldir. Annað hefur komið á daginn og var söngvarinn Johnny Solinger fenginn til að fylla í skarðið. Síðan þá hafa Skid Row gefið út tvær plötur og hefur sú síðasta Revolutions Per Minute sem kom út í fyrra fengið mikið lof gagnrýnenda.
Það má því búast við feitum tónleikum á NASA enda er ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst að sjá band á stærð við Skid Row spila á Nasa, ROCK ON
ATH 20 ára aldurstakmark nema í fylgd með forráðamanni.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 01.12.07 - Saturday | 20:00 | Skid Row - Tónleikar | Nasa | R&R Music | 2.900 kr. |


