Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Hin goðsagnakennda hljómsveit D-A-D kemur Íslendingum til bjargar!
Spilar á Nasa laugardaginn 24. janúar.

Allur ágóði tónleikanna rennur óskiptur til Because we care samtakanna.

D-A-D (eða Disneyland After Dark) er ein þekktasta hljómsveit Danmerkur fyrr og síðar. Hljómsveitin hefur spilað oftar á stóra sviðinu í Roskilde en nokkur önnur hljómsveit og var um árabil fengin til þess að loka hátíðinni. Hún á marga aðdáendur hér á Íslandi og lagið Sleeping my day away var gríðarlega vinsælt á öldum ljósvakans. Það er því verulegur fengur í hljómsveitinni og rokkþyrstir Íslendingar ættu ekki að láta þetta konfekt framhjá sér fara.

B.sig sér um upphitun á tónleikunum en sveitin hefur getið sér gott orð fyrir frumburð sinn sem kom út á síðasta ári: Good morning mr. evening og frábæra spilamennsku á tónleikum.

Félagsskapurinn sem stendur að komu D-A-D til Íslands er Because We Care en það er félagsskapur sem spratt upp í kring um neyð Íslendinga í Danmörku í tengslum við bankahrunið. Danski tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Poul Krebs kynntist hremmingum íslenskra námsmanna í Árósum og hleypt var í kjölfarið af stað söfnun sem nú þegar hefur skilað sér í 8 m.kr. framlögum til námsmanna og lífeyrisþega í vanda í Danmörku.

Þess ber að geta að D-A-D kemur fram án greiðslu en auk þess styðja mörg fyrirtæki og einstaklingar þetta framtak en vert er að taka sérstaklega fram rausnarlegt framlag Iceland Express en án þess framlags hefði ekki verið hægt að standa að þessum tónleikum.

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
24.01.09 - Saturday 20:30 D-A-D - Tónleikar Nasa Austur Þýskaland 2.900 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Macland.is
Uppfæra Flash