Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Jóhann Guðrún með stórtónleika í Laugardalshöll

Söngkonan unga Jóhann Guðrún hefur unnið hug og hjörtu Íslendinga og heillað alla Evrópu með frábærum söng og fallegri framkomu.

Jóhanna Guðrún hefur nú ákveðið að koma fram á stórtónleikum í laugardalshöll 4 júní. Á tónleikunum mun Jóhanna flytja lög af plötu sinni “Butterflies and Elvis” í bland við þekktar söngperlur og auðvitað Eurovisionlagið “Is It True”

Með Jóhönnu leikur 7 manna hljómsveit undir stjórn Þóris Úlfarssonar og einnig er von á góðum gestum sem munu syngja með Jóhönnu.

Tónleikarnir eru einstakt tækifæri fyrir aðdáendur Jóhönnu til að sjá hana á sviði við bestu mögulegu aðstæður. Jóhönnu bíða fjöldamörg tækifæri á erlendri grund og því gæti orðið bið á að hún geti sinnt tónleikahaldi á Íslandi.

Í kjölfar frækinnar frammistöðu Jóhönnu Guðrúnar í Eurovision söngvakeppninni í Moskvu hafa mörg stærstu hljómplötufyrirtæki og umboðsskrifstofur heims lýst yfir áhuga á samstarfi. Jóhanna er nú á leið til Svíþjóðar til fundarhalda og samningaviðræðna ásamt umboðskonu sinni, Maríu Björk Sverrisdóttur. Af þessum sökum sér Jóhanna Guðrún sig tilneydda að fresta fyrirhuguðum tónleikum í Laugardalshöll til haustsins.

Þeir sem þegar hafa keypt miða á tónleikana geta geymt þá til haustsins eða fengið endurgreidda með því að hafa samband við Midi.is.

Jóhönnu Guðrúnu og aðstandendum tónleikanna þykir leitt að þurfa að fresta tónleikunum nú en vonast til að sjá sem flesta í Laugardalshöllinni í haust.

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
04.06.09 - Thursday 21:00 Jóhanna Guðrún - Tónleikar Laugardalshöll Mr. Destiny 4.500 kr. / 3.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class