- You are here »
Manstu ekki eftir mér # 2

Sadly this information does not exist in your language.
Manstu ekki eftir mér #2: Megas – Millilending (Demant hf gaf út 1975)
Aðrir tónleikarnir í tónleikaröðinni Manstu ekki eftir mér fara fram á Veitingastaðnum Nasa fimmtudaginn 10.september næstkomandi. Megas mun þá ásamt Senuþjófunum leika plötu sína Millilending.
Á tónleikaröð þessari koma fram þekktir íslenskir tónlistarmenn og flytja eigin hljómplötur í heild sinni. Það var hljómsveitin Ensími sem reið á vaðið og lék plötuna Kafbátamúsik fyrir troðfullu húsi þann 11.júní síðastliðinn. Tónleikaröðin er samstarfsverkefni Reykjavík Grapevine og Rafskinnu.
Millilending kom út árið 1975 og er önnur plata Megasar. Á henni er að finna nokkur af þekktustu lögum hans svo sem “Silfurskotturnar hafa sungið fyrir mig”, “Ég á mig sjálf (söngurinn hennar Diddu)”, “Sennilega það síðasta (sem víkingurinn mælti um og eftir fráfall sitt) og “Ragnheiður biskupsdóttir”. Það var hljómsveitin Júdas sem lék með Megas á plötunni en á tónleikunum á Nasa munu það vera Senuþjófarnir sem spila með honum
Millilending var í 38. sæti í kosningu á plötu aldarinnar sem vel valinn hópur sérfræðinga valdi árið 2001 í tengslum við rokksögulega bók Dr. Gunna, Eru ekki allir í stuði. Millilending var í efstu 50 sætunum í valinu um 100 bestu plötur Íslandssögunnar í kosningu sem Tónlist.is stóð fyrir á árinu.
Miðaverð: 2.000 kr í forsölu á midi.is. 2.500 kr við hurð.
Tónleikarnir eru gerðir í samstarfi við Rás 2 og Thule.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 10.09.09 - Thursday | 22:00 | Manstu ekki eftir mér no 2 - Megas flytur Millilendingu | Nasa | Fröken ehf | 2.000 kr. |


