Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Enn heldur áfram að bætast við tónleikaröðina Réttir en í þetta sinn hefur bæst við róleg kvöldstund í Fríkirkjunni þann 24. september með KK og Árstíðum.

KK þarf vart að kynna fyrir landanum en þar er á ferðinni einn af okkar ástkærustu tónlistarmönnum sem bregst aldrei þegar kemur að því að halda góða tónleika.

Árstíðir hefur mikið verið í sviðsljósinu síðustu mánuði og getið sér gott orð fyrir þjóðlega tónlist sína. Á sumrinu sem leið gaf hún út sína fyrstu breiðskífu og fór á tónleikaferð um landið í samstarfi við Rás 2 og tónlistarsjóðinn Kraum.

Einstakur hljómburður Fríkirkjunnar hentar þessum tónlistarmönnum mjög vel en Árstíðir hafa á ferli sínum meðal annars gefið út 7 laga tónleikaplötu sem tekinn var upp í kirkjunni.

Kaupa verður sérmiða á þennan atburð þar sem miðinn inn á Réttir gildir ekki á þessa tónleika

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
24.09.09 - Thursday 21:00 KK og Árstíðir - Í Fríkirkjunni Fríkirkjan Faxaflói ehf 2.000 kr.

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash