Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Heyrðu mig nú!
Kroumata

Heyrðu mig nú! er tónleikaröð sérstaklega ætluð þeim sem hafa gaman af nýrri, spennandi, krassandi tónlist. Tónleikarnir eru á föstudagskvöldum og taka um klukkustund, að þeim loknum er boðið upp á hressingu í anddyri Háskólabíós þar sem tónleikagestum gefst kostur á að spjalla við flytjendur kvöldsins.

Bandaríkjamaðurinn Steve Reich er einn af höfuðpaurum mínímalismans og eitt áhrifamesta tónskáld síðustu áratuga. Breska dagblaðið The Guardian sagði Reich nýverið „einn fárra núlifandi höfunda sem sagt verður um að hafi breytt gangi  tónlistarsögunnar“.

Meðal þeirra sem hafa samið tónlist undir áhrifum hans má nefna Brian Eno og Sufjan Stevens. Reich hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, hlaut meðal annars hin virtu Polar-verðlaun árið 2007 ásamt Sonny Rollins, og Pulitzer-verðlaunin 2009.

Drumming er almennt talið eitt helsta meistaraverk Reichs og hljómar nú á Íslandi í fyrsta sinn. Verkið er samið á árunum 1970–71, eftir ferðalag höfundarins til Afríku þar sem hann varð fyrir áhrifum af trommumeisturum í Ghana.

Drumming er samið fyrir einkar litríkan slagverkshóp: átta bongótrommur, þrjár marimbur, þrjú klukkuspil, tvær söngkonur og flautuleikara. Þetta er kraftmikið verk þar sem allt litróf slagverksins fær að njóta sín: dynjandi trommutaktur í bland við ljúfa klukkutóna.

Enginn áhugamaður um nýja og ferska tónsköpun má láta þessa tónleika framhjá sér fara.

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
02.10.10 - Saturday 17:00 Sinfóníuhljómsveitin - Ungsveitin Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 3.900 kr. / 3.400 kr.
08.10.10 - Friday 19:30 Sinfóníuhljómsveitin - Porgy and Bess Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 3.900 kr. / 3.400 kr.
23.10.10 - Saturday 17:00 Sinfóníuhljómsveitin - Ævintýrið um töfraflautuna Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 1.700 kr.
03.11.10 - Wednesday 20:00 Sinfóníuhljómsveitin - Páll Óskar og Sinfó Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 4.700 kr. / 4.400 kr.
04.11.10 - Thursday 20:00 Sinfóníuhljómsveitin - Páll Óskar og Sinfó Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 4.700 kr. / 4.400 kr.
05.11.10 - Friday 20:00 Sinfóníuhljómsveitin - Páll Óskar og Sinfó Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 4.700 kr. / 4.400 kr.
06.11.10 - Saturday 17:00 Sinfóníuhljómsveitin - Páll Óskar og Sinfó Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 4.700 kr. / 4.400 kr.
11.11.10 - Thursday 20:00 Sinfóníuhljómsveitin - Chaplin - Bíótónleikar Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 2.500 kr.
12.11.10 - Friday 20:00 Sinfóníuhljómsveitin - Chaplin - Bíótónleikar Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 2.500 kr.
13.11.10 - Saturday 17:00 Sinfóníuhljómsveitin - Fimm bíó með Chaplin Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 1.700 kr.
17.12.10 - Friday 17:00 Sinfóníuhljómsveitin - Jólatónleikar -föstudagur Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 1.700 kr.
18.12.10 - Saturday 17:00 Sinfóníuhljómsveitin - Jólatónleikar II Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 1.700 kr.
05.01.11 - Wednesday 19:30 Sinfóníuhljómsveitin - Vínartónleikar I Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 4.700 kr. / 4.400 kr.
07.01.11 - Friday 19:30 Sinfóníuhljómsveitin - Vínartónleikar III Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 4.700 kr. / 4.400 kr.
08.01.11 - Saturday 17:00 Sinfóníuhljómsveitin - Vínartónleikar IV Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 4.700 kr. / 4.400 kr.
13.01.11 - Thursday 19:30 Sinfóníuhljómsveitin - Ungir Einleikarar Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 3.900 kr. / 3.400 kr.
20.01.11 - Thursday 19:30 Sinfóníuhljómsveitin - Kvikmyndatónleikaveisla Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 3.900 kr. / 3.400 kr.
27.01.11 - Thursday 19:30 Sinfóníuhljómsveitin - Myrkir músíkdagar Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 3.900 kr. / 3.400 kr.
25.03.11 - Friday 21:00 Sinfóníuhljómsveitin - Drumming / Kroumata Heyrðu mig nú! Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 1.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash