Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Það sem hverfur
í Þjóðmenningarhúsinu

Ragnheiður Gröndal - Sigurður Flosason - Egill Ólafsson
ásamt Kjartani Valdemarssyni og Matthíasi Hemstock
á tónleikum sunnudaginn 14. febrúar kl. 20

Í tilefni af útkomu geisladisksins Það sem hverfur og vetrarjazzi í Reykjavík er efnt til tónleika í Þjóðmenningarhúsinu þar sem flutt verður ný tónlist Sigurðar Flosasonar við eyðibýlaljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Tónlistin kom út á samnefndum geisladiski í nóvember sl og hlaut mjög góða dóma. Þetta er dramatísk tónlist  þar sem jazz, popp, sígild tónlist og þjóðleg stef renna saman og skapa bræðing sem hæfir efninu vel. Flytjendur eru söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson, Sigurður Flosason á ýmis blásturshljóðfæri, Kjartan Valdemarsson á píanó og hljómborð og Matthías Hemstock á trommur, trommuheila og náttúruhljóð.

Aðeins þetta eina sinn. Takmarkaður sætafjöldi!

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
14.02.10 - Sunday 20:00 Það sem hverfur - Ragnheiður Gröndal - Sigurður Flosa - Egill Ólafs Þjóðmenningarhúsið Dimma ehf 2.500 kr.

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash