Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Dikta heldur stórtónleika á Nasa við Austurvöll laugardagskvöldið 20. febrúar. Dikta gaf út plötuna Get it Together sl. haust og hafa viðtökurnar verið með eindæmum góðar, platan hefur hlotið einróma lof og seldist upp í tvígang fyrir jólin. Á plötunni eru tvö lög sem þegar höfðu átt gríðarlegum vinsældum að fagna í íslensku útvarpi, lögin Just Getting Started og Let Go, en þriðja smáskífa plötunnar, From Now On sló enn rækilegar í gegn og sat 8 vikur í röð á toppi Lagalistans yfir mest spiluðu lög í íslensku útvarpi. Lagið Thank You er nú farið að hljóma á öldum ljósvakans um allt land og er nú þegar farið að fá gríðargóð viðbrögð.

Dikta fagnaði útgáfu plötunnar í nóvember sl. á Nasa þar sem troðið var út úr dyrum og þurftu því miður margir frá að hverfa. Dikta hefur spilað á fjölmörgum tónleikum um allan heim og hefur hún sýnt og sannað síðustu misserin að Dikta er orðið eitt þéttasta og skemmtilegasta live band landsins og fer enginn ósnortinn af tónleikum þeirra.

Hljómsveitirnar Ourlives og Cliff Clavin munu sjá um að kynda undir tónleikagestum áður en Dikta stígur á stokk.

Ourlives gaf nýverið út plötuna We Lost The Race. Platan hefur að geyma frábærar lagasmíðar og metnaðarfullar útsetningar sem hafa heillað hlustendur að undanförnu. Það er sjaldgæft að fyrsta plata hljómsveitar innihaldi jafn mörg lög sem hljómað hafa í útvarpi og þessi frumburður Ourlives. Lagið Núna var mest spilaða lagið á útvarpsstöðinni X-inu og hið vinsæla lag Out Of Place sat í fyrsta sæti vinsældarlista Rásar 2 og fór á topp X-Dominos listans. Einnig gerðu þeir góða hluti ásamt Togga með ábreiðunni “Þúsund sinnum segðu já”.

Cliff Clavin samanstendur af fjórum ungum og fjallmyndarlegum drengjum úr Garðabænum sem spila melódískt og kraftmikið rokk og ról. Lagið þeirra Midnight Getaways átti gríðargóðu gengi að fagna í útvarpi á síðasta ári og vita allir þeir sem séð hafa sveitina á tónleikum að þeir eru engu síðri live.

20 ára aldurstakmark.

ATH Uppselt er í forsölu. Miðar verða seldir við hurð á 1.500 kr

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
20.02.10 - Saturday 23:00 Dikta ásamt Ourlives og Cliff Clavin - Stórtónleikar - UPPSELT Nasa Atkid ehf. 1.200 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash