Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Cornelis Vreeswijk í Norræna húsinu

Guðrún Gunnars og Aðalsteinn Ásberg flytja úrval úr verkum söngvaskáldsins vinsæla í tali og tónum
Gunnar Gunnarsson, píanó - Jón Rafnsson, kontrabassi

Í kjölfar afar vel heppnaðrar útgáfu og tónleika um land allt á síðasta ári er nú efnt til nýstárlegrar tónleikaraðar í Norræna húsinu þar sem fléttað er saman tónlist og frásögn af lífi þessa einstaka trúbadúrs. Guðrún og Aðalsteinn gera Vreeswijk verðug skil og eðalfínir textar og lög njóta sín til fulls.

Dagskráin verður flutt í örfá skipti og sætafjöldi er takmarkaður. Veitingastaðurinn Dill býður upp á tvíréttaðan matseðil á tilboðsverði sýningardagana. Kvöldskemmtun í sérflokki fyrir unnendur góðrar tónlistar!

Cornelis Vreeswijk (1937-1987) var söngvaskáld, ljóðskáld og leikari, fæddur í IJmuiden í Hollandi, en fluttist 12 ára gamall ásamt foreldrum sínum til Svíþjóðar. Hann ætlaði sér að verða blaðamaður, en tónlistin varð fljótlega helsta viðfangsefni hans. Biturt háð og samfélagsádeila í verkum hans aflar honum sífellt nýrra aðdáenda. Á ferli sínum sendi hann frá sér nokkrar ljóðabækur og á fimmta tug LP platna í Svíþjóð og Hollandi. Auk þess að vera vinsæll tónlistarflytjandi lék hann við góðan orðstír í leikhúsum og kvikmyndum. Cornelis Vreeswijk er jafnan talinn meðal helstu söngvaskálda Svía.

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
24.02.10 - Wednesday 21:00 Cornelis Vreeswijk - í tali og tónum Norræna húsið Dimma ehf 2.500 kr.
26.02.10 - Friday 21:00 Cornelis Vreeswijk - í tali og tónum Norræna húsið Dimma ehf 2.500 kr.
27.02.10 - Saturday 21:00 Cornelis Vreeswijk - í tali og tónum Norræna húsið Dimma ehf 2.500 kr.
06.03.10 - Saturday 21:00 Cornelis Vreeswijk - í tali og tónum Norræna húsið Dimma ehf 2.500 kr.
12.03.10 - Friday 21:00 Cornelis Vreeswijk - í tali og tónum Norræna húsið Dimma ehf 2.500 kr.
27.03.10 - Saturday 21:00 Cornelis Vreeswijk - Aukatónleikar Norræna húsið Dimma ehf 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Brim