- You are here »
Elvis í 75 ár

Sadly this information does not exist in your language.
Elvis í 75 ár í Sjallanum á Akureyri
Friðrik Ómar ásamt landsliði hljóðfæraleikara og söngvara hefur slegið í gegn í Salnum í Kópavogi með frábærum tónleikum þar sem fluttar eru helstu perlur Elvis Presley.
Nú hefur verið ákveðið að heimsækja Akureyringa með tónleikum í Sjallanum á Akureyri 12. mars.
Elvis Presley fæddist í Tupelo í Mississippi-ríki í Bandaríkjunum 8. janúar árið 1935 og hefði því orðið 75 ára í janúar sl. Elvis sló fyrst í gegn 1956, tuttugu og eins árs, og varð skjótt skærasta rokk og roll stjarnan, en rokkið var þá ný tónlistargrein innan dægurlagatónlistarinnar. Elvis var oft nefndur konungur rokksins eða bara kóngurinn.
Hljómsveitin er skipuð frábærum hljómlistarmönnum:
Þórir Baldursson píanó, Róbert Þórhallsson bassi, Jóhann Hjörleifsson trommur, Hallgrímur Ingvason gítar, Ómar Guðjónsson gítar, Heiða Ólafsdóttir raddir, Margrét Eir raddir og Kristján Gíslason raddir.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 12.03.10 - Friday | 20:00 | Elvis í 75 ár - Tónleikar | Sjallinn (Akureyri) | Rigg ehf | 3.500 kr. |


