- You are here »
Kristján Jóhannsson

Sadly this information does not exist in your language.
Stórtónleikar:
Kristján Jóhannsson og Söngvinir
Kristján Jóhannsson hélt eftirminnanlega tónleika í Háskólabíó á síðasta ári í tilefni 30 ára söngafmælis síns. Núna heldur Kristján ásamt Hljómsveit Hjörleifs Valssonar og Söngvinum útá land og syngur meðal annars í Keflavík, Akureyri, Ísafirði og á Húsavík.
Það er of langt mál að telja upp afrek Kristjáns í óperu- og tónlistarhúsum um víða veröld, sigrar hans og viðtökur gagnrýnenda hafa yfirleitt verið á eina lund, hvort heldur sem er í Metropolitan óperunni, á Scala í Covent Garden eða í Carnegie Hall. En nú er Kristján Jóhannsson kominn aftur heim og mun dvelja hér næstu tvö árin. Á þeim tíma munu margir njóta starfskrafta hans, en Kristján kennir um þessar mundir í söngskóla Sigurðar Demetz og hefur haldið masterclassa í Söngskólanum í Reykjavík fyrir næstu kynslóð söngvara. Kristján á þá ósk heitasta að koma fleiri Íslendingum á framfæri og sjá þá ná árangri á alþjóðlegum vettvangi óperuheimsins.
Tónleikarnir verða sem hér segir:
27. mars, kl 17.00 - Hljómahöll, Keflavík
3. apríl, kl 17.00 - KA Höllin, Akureyri
15. maí, kl 17.00 - Íþróttahúsið Ísafirði
29. maí, kl 16.00 - Húsavíkurkirkja
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.03.10 - Saturday | 17:00 | Kristján Jóhannsson og söngvinir - og Söngvinir | Hljómahöllin (Keflavík) | Jóhannsson ehf | 5.700 kr. |
| 03.04.10 - Saturday | 17:00 | Kristján Jóhannsson og söngvinir - og Söngvinir | KA Höllin (Akureyri) | Jóhannsson ehf | 5.700 kr. |
| 15.05.10 - Saturday | 17:00 | Kristján Jóhannsson og söngvinir - og söngvinir | Íþróttahúsið á Ísafirði | Jóhannsson ehf | 4.300 kr. |


