Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Eistnaflug er árleg rokkhátíð sem haldin hefur verið í Neskaupstað frá árinu 2005. Rokk í þyngri kantinum er í hávegum haft á hátíðinni en nær allur skali rokktónlistarinnar þó spannaður og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir rokkáhugamenn.

Hátíðin hefur það orð á sér að vera árshátíð eða uppskeruhátíð rokkarans, þar sem um þúsund manns hvaðanæva af landinu koma saman í stórbrotnu umhverfi til að skemmta sér í bróðerni og samstöðu.

Hátíðin stendur frá fimmtudegi til laugardags og spila tugur til tylft hljómsveita hvern dag. Mannfjöldinn í Neskaupstað nær tvöfaldast þessa helgi og er mikið líf og fjör í bænum.

Tjaldsvæði eru í boði, eitt fyrir fjölskyldufólk og aðra rólyndismenn en annað fyrir þá sem neita að fara að sofa að tónleikum loknum.

"Ef þú manst eftir Eistnaflugi, þá varstu ekki þar!".

Nöfn allra hljómsveita sem leika munu á hátíðinni, sem og allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar.

Eistnaflug 2010 stendur yfir dagana 8. - 10. júlí

18 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
08.07.10 - Thursday 19:00 Eistnaflug 2010 - 8. - 10. júlí Neskaupstað Eistnaflug 6.666 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Macland.is
Uppfæra Flash