- You are here »
Maraþontónleikar

Sadly this information does not exist in your language.
Maraþontónleikar
Maraþontónleikar Kársneskóranna verða í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs á laugardaginn, 5. maí. Þar munu um 400 börn standa fyrir samfelldri söngdagskrá frá kl.09:00 að morgni til kl.16:00 og ljúka þannig 37. starfsári kórsins. Þetta er í 10. sinn sem kórarnir efna til Marþontónleika, en þeir eru haldnir annað hvert ár og hafa notið mikilla vinsælda hjá bæjarbúum og öðrum velunnurum kóranna. Nánari dagskrá má einnig finna á heimasíðu Kársnesskóla.
kl.09:00 Skólakór Kársness flytur dagskrá tileinkaða Halldóri Laxness
kl.10:00 Stóri Kór Kársnesskóla orkuboltarnir úr 7. bekk sýna hvað í þeim býr
kl.10:45 Miðkór Kársnesskóla yndisleg sjarmatröll úr 4. bekk
kl.11:30 Kór Vatnsendaskóla fær að heiðra okkur Kársnesinga með söng
kl.12:00 Englakórinn skipaður stelpunum úr 5. og 6. bekk
kl.12:45 Álfarnir – snillingarnir úr 6. bekk taka að sér að syngja á kórstjórnarprófi
kl.13:15 Karlakór Kársnesskóla - prakkarar úr 5. og 6. bekk. Úps!
kl.14:00 Litli kór Kársnesskóla skipaður ómótstæðilegum krílum úr 3. bekk
kl.14:45 Leynigestir!
kl.15:00 Skólakór Kársness slær lokahljóminn og flytur fjölbreytta efnisskrá
Verð aðgöngumiða er kr.2000, og eru kaffiveitingar innifaldar í verðinu. Ókeypis er fyrir börn 13 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Sami aðgöngumiði gildir allan daginn og er fólki frjálst að koma og fara að vild. Stjórnandi kóranna er Þórunn Björnsdóttir en undirleik annast ýmsir fjölskylduvinir.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 05.05.12 - Saturday | 09:00 | Maraþontónleikar - Kársneskóranna | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 2.000 kr. |


