Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

AUKATÓNLEIKAR KOMNIR Í SÖLU!

Hin sögufræga hljómsveit Mannakorn hélt ógleymanlega tónleika í Háskólabíói laugardaginn 15. maí síðastliðinn. Uppselt varð á tvenna tónleika á skotstundu og komust miklu færri að en vildu.

Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn með öðrum glæsilegum ferilstónleikum í Háskólabíói laugardaginn 16. október. Sem fyrr er aðeins selt í númerið sæti.

Í aðahlutverki verða að sjálfsögðu þeir Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson, sem hafa verið kjölfestan í bandinu frá stofnun þess og þeim til halds og traust er nákvæmlega sami hópur og áður:

Söngur: Ellen Kristjánsdóttir
Slagverk: Ásgeir Óskarssson
Trommur: Benedikt Brynleifsson
Hljómborð: Eyþór Gunnarsson
Gítar: Stefán Magnússon
Hljómborð: Þórir Úlfarsson
Bakraddir: Elísabet Eyþórsdóttir og fleiri.

Nýútkomin safnplata Mannakorna, Gamli góði vinur, er fáanleg í öllum helstu verslunum og hefur slegið rækilega í gegn. Platan hefur fengið frábæra dóma en Fréttablaðið gaf henni til að mynda fullt hús; fimm stjörnur.

Um tónleikana 15. maí:

"Einstaklega góðir tónleikar." - Egill Helgason, Eyjan.is

"Tárin láku niður kinnarnar á mér." - Jóna Á. Gísladóttir, Pressan.is

Póstlistaforsala Bravó hófst með miklum látum og því eru aukatónleikar sama kvöld komnir í sölu strax. Athugið að stutt hlé verður gert um miðbik beggja tónleika.

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
16.10.10 - Saturday 19:00 Mannakorn - UPPSELT Háskólabíó Sena 4.400 kr.
16.10.10 - Saturday 23:00 Mannakorn - Aukatónleikar - Örfáir miðar Háskólabíó Sena 4.400 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash