- You are here »
Super Mama Djombo

Sadly this information does not exist in your language.
Vinsælasta hljómsveit Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku snýr nú aftur til Íslands fyrir sannkallaða afríska tónlistar- og danshátíð í Nasa. Hljómsveitin stígur á svið kl. 22:00 og heldur uppi fjöri fram að miðnætti. Eftir hlé með tónlist DJ Afríka 20:20 stígur sveitin aftur á svið kl. 01:30 fyrir þá sem enn hafa orku afgangs og þá sem eru á næturröltinu og vilja dansa fram undir morgunn.
Sérstakir gestir: Egill Ólafsson, Sigtryggur Baldursson og Samúel J. Samúelsson.
Þegar Super Mama Djombo spiluðu á Nasa á Listahátíð 2008 mátti m.a. lesa eftirfarandi dóma í blöðum:
„Vestur-afríska stórsveitin Super Mama Djombo gerði allt vitlaust á Nasa ..." (Fréttablaðið)
„Í einu orði sagt var þetta meiriháttar og ég gekk kátur út í bjarta sumarnóttina, kófsveittur og með bros á vör.” (Morgunblaðið)
“The energy and way they riled the crowd was breathtaking and I doubt if I’ve been as swept up by any band in a long time.” (Grapevine)
Platan Ar puro sem var tekin upp á Íslandi og gefin út af Smekkleysu árið 2008 fékk eftirfarandi umsögn á Rás 2 sem plata vikunnar: „Ástríðufull tónlist, hin sanna tónlist. Beint frá hjartanu. Sekkur í merg og bein.” Tíu af 10 mögulegum stjörnum.
Það verður sem sagt afrískt dansstuð fram á nótt í Nasa föstudagskvöldið 6. ágúst.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 06.08.10 - Friday | 22:00 | Super Mama Djombo - Tónleikar | Nasa | Smekkleysa ehf | 2.500 kr. |


