Cut Copy

Sadly this information does not exist in your language.
Cut Copy á Íslandi, 20 júlí
Tónleikar sumarsins í Reykjavík
Tónleikar Cut Copy á NASA við Austurvöll, 20. júlí.
Cut Copy heimsækir Reykjavík sem lið í tónleikaferð sveitarinnar um heimsbyggðina í kjölfar útgáfu nýrrar breiðskífu; Zonoscope. Sveitin á að baki tvær fyrri breiðskífur - Bright Like Neon Love (2004) og In Ghost Colours (2008) - sem m.a. innihalda smellina “Saturdays”, “Future”, "Lights & Music", “Hearts on Fire” og “Far Away”.
Zonoscope hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og jafnframt náð hærra á sölulista beggja vegna Atlantsála en fyrirrennar hennar. Hljóm Cut Copy mætti lýsa sem dansskotinni popptónlist undir sterkum áhrifum frá tónlist níunda áratugnum, en á nýju plötunni kveður að mörgu leiti við nýjan tón. Sveitin hefur verið borin saman við ólíka listamenn á borð við Kraftwerk, Hot Chip og Roxy Music.
Cut Copy þykir frábær tónleikasveit og hefur komið fram á mörgum helstu tónlistarhátiðum heims. Auk eigin lagasmíða eru Cut Copy liðtækir við að að vinna með og endurhljóðblanda aðra listamenn og má þar nefna Kaiser Chiefs, Bloc Party, Franz Ferdinand og Daft Punk - sem allar hafa fengið sveitina til að leika með sér á tónleikaferðum sínum.
Cut Copy vakti mikla lukku á nýafstaðinni Coachella hátíð – og leikur á mörgum helstu tónlistarhátíðum sumarsins (Sonar, Open Air Hultsdfred, Bestival o.fl.). Sveitin kemur hingað til lands beint af Pitchfork Music Festival í Chicago.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 20.07.11 - Wednesday | 21:30 | Cut Copy - Tónleikar | Nasa | Faxaflói ehf | 3.900 kr. |


