Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Aldrei er gott bítlalag of oft spilað... sagði góður aðdáandi bítlanna einu sinn sem oftar, en nú geta Bítlaaðdáendur glaðst því félagarnir Baldursbræður hafa ákveðið að efna til skemmtikvölds þann 3. mars nk. og verður þemað Bítlarnir.

Hljómsveitin Baldur leikur og syngur Bítlalög, ásamt Karlakór Oddfellowbræðra. Stúlknakvartett syngur, auk þess verður stiklað á sögu Bítlanna. Strákarnir úr hljómsveitinni Pónik sem gerðu garðinn frægan á síðari hluta liðinnar aldar með bestu hljómsveitum þess tíma, rifja upp gamla takta, segja sögur, grípa í hljóðfæri eða taka lagið með sínu nefi. Auk þess koma að skemmtuninni vel þekktir og minna þekktir söngvarar og hljóðfæraleikarar sem tengjast innbirgðis með einum eða öðrum hætti.

Síðast en ekki síst má nefna að „lengsta lögga landsins“ Geir Jón Þórisson, tekur lagið.

Allur ágóði skemmtunarinnar rennur óskiptur til kaupa á tækjum og tólum fyrir viðbyggingu Líknardeildar LSH í Kópavogi. (krabbameinsdeild)

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
03.03.12 - Saturday 20:00 Þroskaðir Bítlar - Skemmtikvöld í þágu líknardeildar LSH í Kópavogi Háskólabíó Baldurssjóður 3.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash