Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Mótettukór Hallgrímskirkju 30 ára
Hátíðatónleikar í Hallgrímskirkju lau 21. og sun 22. apríl kl. 17
W.A. Mozart: Messa í c-moll og Requiem

Tvö af öndvegisverkum Mozarts verða flutt á sannkölluðum hátíðartónleikum í tilefni af 30. starfsári Listvinafélagsins og 30 ára afmæli Mótettukórsins.

Messan í c-moll var stærsta tónsmíð Mozarts fyrir kór og hljómsveit, að undanskilinni sálumessunni sem hann náði ekki að ljúka við fyrir andlát sitt. Messan er raunar einnig ófullgerð, en Mozart samdi hana í Vínarborg á árunum 1782–83, þegar hann var á hátindi ferils síns. Unnusta hans, Konstanze Lange, hafði nýverið náð sér eftir erfið veikindi og Mozart samdi verkið sem þakklætisvott til almættisins fyrir að hafa gefið henni bata. Því kemur ekki á óvart að glæsilegur sópraneinsöngur einkenni verkið, enda eru þættir á borð við aríuna „Et incarnatus“ með því guðdómlegasta sem Mozart festi á blað.

Requiem eftir Mozart er eitt dáðasta verk allra tíma og flutti Mótettukórinn það fyrir fullu húsi á fyrstu tónleikum sínum í nývígðri Hallgrímskirkju 1986. Kórinn flutti það síðast árið 2005 og er því mikil tilhlökkun að heyra þetta óviðjafnanlega verk aftur í flutningi kórsins, úrvalseinsöngvara og 30 manna hljómsveitar.

Einvalalið einsöngvara kemur fram á þessum hátíðatónleikum og er ánægjulegt að geta þess að þau Herdís Anna, Magnús og Elmar voru öll félagar í Mótettukór Hallgrímskirkju áður en einsöngvaraferill þeirra hófst erlendis og er þetta frumraun þeirra Herdísar Önnu og Elmars í einsöngshlutverkum með kórnum. Herdís Anna hefur nýlokið einsöngsprófi frá Hans Eisler tónlistarháskólanum í Berlín og syngur nú m.a. hlutverk Musette í La Bohéme hjá Íslensku óperunni, Magnús er fastráðinn bassasöngvari við óperuna í Frankfurt til margra ára og Elmar hefur náð miklum árangri sem tenór með ýmsum virtum hópum í Hollandi, sem sérhæfa sig í upprunaflutningi. Þóra hefur oft komið fram á tónleikum með Mótettukornum, nú síðast á jólatónleikum Mótettukórsins 2011. Frammistaða Auðar Guðjohnsen í einsöngshlutverkinu í Vesper eftir Rachmaninoff með Mótettukórnum er mörgum ógleymanleg, en Auður lauk einsöngvaraprófi frá Skotlandi og er nú meðlimur í kammerkórnum Schola Cantorum.

Flytjendur:
Þóra Einarsdóttir sópran
Herdís Anna Jónasdóttir sópran
Auður Guðjohnsen alt
Elmar Gilbertson tenór
Magnús Baldvinsson bassi

Mótettukór Hallgrímskirkju
Kammersveit Hallgrímskirkju
Ari Þór Vilhjálmsson konsertmeistari
Stjórnandi: Hörður Áskelsson

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
21.04.12 - Saturday 17:00 Mozart - Messa í c-moll og Requiem Hallgrímskirkja Mótettukór Hallgrímskirkju 4.500 kr.
22.04.12 - Sunday 17:00 Mozart - Messa í c-moll og Requiem Hallgrímskirkja Mótettukór Hallgrímskirkju 4.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class