- You are here »
Sumar konur

Sadly this information does not exist in your language.
Sumar konur
Kvennakór Kópavogs heldur upp á tíu ára starfsafmæli sitt með veglegum tónleikum í Salnum í Kópavogi á sumardaginn fyrsta, 19. apríl, kl. 20:00.
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt.
Ástin og sumarið munu svífa yfir vötnum þegar Kvennakór Kópavogs kannar litróf íslenskrar tónlistar og flytur fjölbreytt efni sem spannar allt frá þjóðlögum til dægurlaga samtímans. Kórinn syngur m.a. lög eftir þau Sigfús Halldórsson og Ingibjörgu Þorbergs.
Stjórnandi Kvennakórs Kópavogs er Gróa Hreinsdóttir og undirleikari er Helgi Már Hannesson. Hulda María Halldórsdóttir mun syngja á táknmáli.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 19.04.12 - Thursday | 20:00 | Sumar konur - Kvennakórs Kópavogs | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 2.500 kr. |


