Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Það er okkur öllum mikill harmur að sjá á eftir einni skærustu og bestu söngkonu síðari ára deyja langt fyrir aldur fram aðeins 48 ára gömul. Whitney Houston kom inní tónlistarbransann eins og stormsveipur og vann hug og hjörtu allra sem á hlýddu. Hún er ekki bara stjarna, hún er stjarnan. Söngkona sem nánast allar aðrar söngkonur hafa litið upp til og dáðst af.

Ófáar söngkonur hafa horft til hennar sem átrúnaðargoðs en fáar hafa staðist samanburð því hún var engri lík. Hún hafði fegurð, ótrúlega hæfileika og þokka sem heillaði alla. Sannkallaður demantur í hafi eftirlíkinga.

Við höfum henni margt að þakka og þá ekki síst fyrir það hvernig hún setti markið hærra og hefur fyllt okkur löngun til að ná lengra, fyrir það erum við þakklát. Við viljum því heiðra minningu stjörnunar og boða til tónleika þar sem tekin verða hennar bestu lög.

Tónleikarnir verða haldnir í Austurbæ þann 4.maí kl. 20.00 en húsið mun opna kl. 19.00

Fram koma þau Jóhanna Guðrún, Íris Hólm, Hanna Guðný, Ína, Valgerður, Guðrún Árný ásamt Magna og
Kvenna kór Reykjavíkur.

Hljómsveit skipa þeir Benedikt Brynleifsson (trommur), Ingvar Alfreðsson (hljómborð), Kristján Grétarsson (gítar) og Róbert Þórhallsson (bassa)

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
04.05.12 - Friday 20:00 Whitney Houston - Heiðurstónleikar Austurbær Austurbær 3.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash