Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

 KEFLAVÍK MUSIC FESTIVAL 2012
 7. JÚNÍ - 10. JÚNÍ

Keflavík hefur í gegnum tíðina verið ein helsta uppstrétta íslenskrar  tónlistar. Helstu tónlistarmenn og hljómsveitir þjóðarinnar koma úr  þessum margrómaða bítlabæ og tónlistarsagan, bæði í fortíð og nútíð er  sterk. Hver man ekki eftir Rúnari Júl, Gunnari Þórðarsyni, Magnúsi  Kjartanssyni, Jóhanni Helgasyni, Hljómum, lónlí blú bojs og Trúbrot ? Jú  þessir snillingar hafa í gegnum tíðina snert strengri innra með okkur  öllum, tætt okkur út á dansgólfið eða bara fengið okkur til að syngja  dægurperlurnar í sturtunni á morgnanna.

Hjálmar, Klassart, Of monsters and men, Valdimar, partýið heldur  stanslaust áfram í bítlabænum sem virðist skila af sér tónlistarmönnum á  heimsmælkvarða. Geimsteinn er án efa hljóðver þar sem ótrúlegustu  listamenn Íslands hafa stigið sín fyrstu skref í átt til frægðar, allt  þetta og meira til gerir það að verkum að ekkert bæjarfélag á Íslandi  getur tekið titilinn “bítlabær” af Keflavík.

Það er við hæfi að blása til tónlistarveislu í bítlabænum og koma saman  helstu tónlistarsnillingum landsins og líka boða til leiks erlenda  tónlistarmenn svo fá nú tækifæri á að koma fram í sjálfri Keflavík. Yfir 100 tónlistarmenn og hljómsveitir taka þátt í ævintýrinu undir yfirskriftinni Keflavík Music Festival, tónlistarhátíðinni sem fram fer  dagana 7 til 10 júní næstkomandi.

Hátíðin fer fram í miðbæ Reykjanesbæjar á helstu skemmtistöðum bæjarins  (Center, Paddys, Manhattan, Ráin og Thai Keflavík), verslanir,  veitingarhús og bæjarfélagið verða með í stemmningunni þar sem  fjölbreytileikinn ræður ríkjum. Þetta er í fyrsta skiptið sem blásið er  til hátíðarinnar en verður án efa árlegur viðburður í bítlabænum.  Hátíðin sem verður ein sú stærsta á landinu, er einnig gullið tækifæri  fyrir nýja og óþekkta tónlistarsnillinga til að koma sér á framfæri, í  bítlabænum fá allir tækifæri til að slá í gegn.

 Kynntu þér lineup hátíðarinnar inná heimasíðu okkar:
 www.keflavikmusicfestival.com

 Afhending armbanda fer fram á skrifstofu Keflavík Music Festival að  Hafnargötu 37 daganna 4 - 9 júní milli kl. 14:00 - 22:00.
 - ATH: Skrifstofan opin yfir alla hátíðina til kl. 03:00.

ATH. miðinn gildir á alla hátíðina.

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
07.06.12 - Thursday 21:00 Keflavík music festival - 7. - 10. Júní Reykjanesbær Agent.is 6.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash