Tilbury

Sadly this information does not exist in your language.
Hljómsveitin Tilbury kom inn á sjónarsviðið fyrir um fjórum mánuðum síðan þegar smáskífa þeirra "Tenderloin" hóf að flakka um internetið. Mánuði síðar kom fyrsta breiðskífa sveitarinnar út, Exorcise, sem hlotið hefur frábæra dóma hjá öllum helstu fjölmiðlum landsins. Exorcise hefur nú setið efst í margar vikur samfleytt á plötulista Gogoyoko og jafnframt á topp tíu lista yfir mest seldu plötur á landinu og lagið Tenderloin hefur setið ofarlega á vinsældarlistum útvarpsstöðva síðan það kom út. Nú loks, þann 5, júlí næstkomandi, ætlar hljómsveitin að fagna þessu öllu saman og halda veglega útgáfutónleika á Iðnó þar sem öll platan verður leikin í fyrsta sinn. Þar verður öllu til tjaldað; valinkunnir tónlistarmenn munu aðstoða við tónlistarflutninginn, nýstirnin í Kiriyama Family munu sjá um upphitun og svo verður frumsýnt splúnkunýtt myndband við næstu smáskífu Tilbury, "Drama", sem unnið var af Helga Jóhannssyni og Atla Viðari Þorsteinssyni.
Hljómsveitin Tilbury var sett saman af trommaranum Þormóði Dagssyni (Skakkamanage, Jeff Who?, Hudson Wayne) sumarið 2010. Upphaflega var um sólóverkefni að ræða sem nefndist Formaður Dagsbrúnar en fljótlega eftir að upptökur hófust á fyrstu breiðskífunni leit hljómsveitin Tilbury dagsins ljós. Sveitin spilar eitthvað sem kalla mætti dramatískt þjóðlagapopp sem einkennist af hljóðgervlum Kristins Evertssonar (Valdimar) og sixtís rafmagnsgítarhljómi Arnar Eldjárns (Brother Grass). Bassaleikarinn Guðmundur Óskar (Hjaltalín) prýðir hljóminn með fransk-ættuðum bassalínum og trymbillinn Magnús Trygvason Eliassen (Sin Fang, Amiina, Moses Hightower) bindur svo allt saman með dínamískum trommuleik sem fer í allar áttir.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 05.07.12 - Thursday | 21:00 | Tilbury - Útgáfutónleikar | Iðnó | Iðnó | 1.800 kr. |


