- You are here »
Maximús Músikús

Sadly this information does not exist in your language.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Maxímús bjargar ballettinum
Maxímús og ballettdansararnir
Stjórnandi: Bernharður Wilkinson
Einleikarar: Nemendur úr Listdansskóla Íslands
Sögumaður: Valur Freyr Einarsson
Alexander Glazunov: Veturinn
Pjotr Tsjajkovskíj: úr Þyrnirós
Maurice Ravel: Gæsamömmusvíta
Jórunn Viðar: Eldur
Í nýju ævintýri kynnist Maxímús Músíkús börnum sem hafa yndi af því að dansa. Hann verður himinlifandi þegar tónlistarhúsið fyllist af ungum dönsurum því að honum finnst svo gaman að dilla sér í takt við tónlistina. Hann gerist laumufarþegi með einu barnanna og fylgist heillaður með dansæfingum nemendanna og því hvernig tónlistin er túlkuð í hreyfingum. Börnin dansa við Þyrnirósu Tsjajkofskíjs og túlka með hreyfingum ævintýri á borð við Tuma Þumal, Fríðu og dýrið, Kínversku prinsessuna og Ævintýragarðinn í Gæsamömmusvítu Ravels. Sýningunni lýkur með Eldi eftir Jórunni Viðar sem var eitt fyrsta íslenska tónverkið sem samið var fyrir listdans.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 19.05.12 - Saturday | 14:00 | Maximús Músikús - Litli tónsprotinn | Eldborg | Harpa | 0 kr. |
| 19.05.12 - Saturday | 17:00 | Maximús Músikús - | Eldborg | Harpa | 0 kr. |


