- You are here »
Berglind María Tómasd - Ég er eyja

Sadly this information does not exist in your language.
Berglind María Tómasdóttir - Ég er eyja
Listahátíð í Reykjavík býður upp á tónleika þriggja tónskálda sem kynna nýja tónlist sína. Þau eiga það sameiginlegt að búa erlendis og koma sjaldan fram á Íslandi og er því mikill fengur að því að fá þau á Listahátíð. Tónskáldin eru Anna Þorvaldsdóttir, Páll Ragnar Pálsson og Berglind María Tómasdóttir og halda þau tónleika hvert fyrir sig í Kaldalóni.
Berglind María Tómasdóttir – Ég er eyja
Þjóðareinkenni, auðkenni og önnur sérkenni eru inntak sýningarinnar Ég er eyja eftir Berglindi Maríu Tómasdóttur. Notast er við videó, vettvangsupptökur, heimasmíðað hljóðfæri, flautur og fleira í um klukkustundarlöngu margmiðlunarverki sem flutt er af höfundinum og tónlistarmanninum fjölhæfa Davíð Þór Jónssyni. Sýningin inniheldur videóverk eftir Frankie Martin.
Berglind María Tómasdóttir stundaði nám í flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Konunglega danska konservatoríið. Meðal helstu kennara voru Bernharður Wilkinson, Hallfríður Ólafsdóttir, Toke Lund Christiansen og Pierre-Yves Artaud.
Berglind hefur komið fram á Listahátíð í Reykjavík, Bang on a Can Marathon, Sumartónleikum í Skálholtskirkju, Myrkum músíkdögum og Nordic Music Days svo fátt eitt sé nefnt, og leikið inn á fjölda hljóðrita. Hún var framkvæmdastjóri Sumartónleika í Skálholtskirkju á árunum 2004-2006, framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna 2005-2007 og umsjónarmaður tónlistarþáttarins Hlaupanótan á Rás 1 2005-2008. Auk þess hefur hún sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir hönd tónlistarmanna. Berglind er búsett í Kaliforníu þar sem hún leggur stund á doktorsnám í flutningi samtímatónlistar við Kaliforníuháskóla í San Diego.
Kaldalónsþrenna
Verð á eina tónleika er 2.500 kr. en ef keyptur er miði á alla þrenna tónleikana er verðið alls 4.500 kr. eða 1.500 kr. á tónleika
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 02.06.12 - Saturday | 17:00 | Berglind María Tómasd - Ég er eyja - | Kaldalón | Harpa | 2.500 kr. |


