Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Anna, Tinna og tveir flyglar
3.júní í Norðurljósum

Anna Guðný Guðmundsdóttir og Tinna Þorsteinsdóttir leika Visions de l'Amen - Verk fyrir tvö píanó eftir Olivier Messiaen

Tveir okkar bestu píanóleikarar leiða saman flygla sína og flytja verk eftir eitt af uppáhaldstónskáldum sínum.

Það eru mikil gleðitíðindi að verk Olivier Messiaen, Visions de l'Amen skuli loksins flutt á Íslandi nú þegar tuttugu ár eru liðin frá dauða hins framsækna franska tónskálds.

Messiaen skrifaði Visions de l'Amen árið 1943, og er það með fyrstu verkunum sem hann samdi eftir að hann var látinn laus úr fangabúðum nasista.  Verkið skiptist í sjö kafla sem hver um sig nálgast á sinn hátt merkingu hins heilaga orðs Amen. Helsti innblástur verksins var hin unga Yvonne Loriod, nemandi Messiaen og seinna eiginkona. Hann skrifaði verkið fyrir þau Yvonne og þau frumfluttu það sama ár í hernumdri Parísarborg. Partur Yvonne hefur rytmískan og hljómrænan blæ meðan partur Oliviers leiðir aðalraddir og þemu verksins. Saman mynda píanóin einskonar slagverkshljómsveit þar sem heyra má óm af Gamelan bjöllum, fuglasöng, gregoríönskum söng og pentatóník. Messiaen sagði einnig að hann skynjaði tónlist á sjónrænan hátt og fyrir honum var aðaltóntegund verksins, A-dúr, blá; líkt og himinninn, eilífðin og paradís. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur flytur stuttan inngang á undan tónleikunum og gefur tónleikagestum innsýn í litríkan tónheim Messiaen.

Anna Guðný Guðmundsdóttir hefur leikið mörg verka Messiaen á farsælum ferli sínum.  Hún gerði meðal annars víðreist um landið með stórvirkið Tuttugu tillit til Jesúbarnsins og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2009 fyrir flutning og upptökur á því risaverkefni, en hún er fyrsti íslenski píanóleikarinn til að leika og taka upp verkið í heild sinni. Tinna Þorsteinsdóttir hefur einnig einbeitt sér að verkum Messiaen, nánar tiltekið Fuglabókum hans (Catalogue d´Oiseaux) og hefur numið hjá helstu Messiaen sérfræðingum heims; Yvonne Loriod-Messiaen, Peter Hill og Håkon Austbø.

Dagsetningar

Date Time Concert Location Promoter Price
03.06.12 - Sunday 11:30 Anna, Tinna og tveir flyglar - Norðurljós Harpa 2.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash