- You are here »
Freddie Mercury

Sadly this information does not exist in your language.
Allt ætlaði um koll að keyra í Eldborg síðasta vetrardag þegar stórskotalið íslenskra hljómlistarmanna steig á stokk og flutti öll bestu lög Freddie Mercury. Húsfyllir var á tvennum tónleikum sem haldnir voru samdægurs í Eldborg.
Viðtökurnar voru slíkar að ákveðið hefur verið að halda fleiri tónleika síðar á þessu ári. Sem fyrr eru það söngvararnir Eyþór Ingi, Magni, Eiríkur Hauksson, Friðrik Ómar, Matthías Matthíasson og Hulda Björk Garðarsdóttir sem flytja lögin ásamt 12 manna hljóm og-raddsveit.
Hljómsveitina skipa:
Halli Gulli trommur
Hannes Friðbjarnarson slagverk
Ingi Björn Ingason bassi
Kristján Grétarsson gítar
Einar Þór Jóhannesson gítar
Stefán Örn Gunnlaugsson hljómborð
Þórir Úlfarsson hljómborð
Raddsveit:
Regína Ósk
Alma Rut
Ína Valgerður
Íris Hólm
Davíð Smári
Ingunn Hlín
Hljóðmeistari: Haffi Tempó
Ljósameistari: Agnar Hermannsson
Yfirumsjón: Rigg Events
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 01.09.12 - Saturday | 19:00 | Freddie Mercury.. - | Eldborg | Harpa | 0 kr. |


