- You are here »
Stopover Series #2 - Dirty Beaches

Sadly this information does not exist in your language.
Kanadíska hljómsveitin Dirty Beaches, skipuð Alex Zhang Hungtai, mun spila á öðrum tónleikum tónleikaraðarinnar Stopover series í Hörpu þriðjudaginn 4.september næstkomandi kl. 20:30
Dirty Beaches gaf út fyrstu plötu sína í fullri lengd, Badlands, á síðasta ári en hún fékk afbragðsdóma og mikla umfjöllun hjá erlendum tónlistarmiðlum. Alex Zhang Hungtai sækir innblástur til fortíðarinnar, til rokkabillíbanda eins og Cramps og jaðargoðsagna eins og Suicide en einnig er hann undir miklum áhrifum frá tónlist kvikmynda eftir David Lynch, Jim Jarmusch, Quentin Tarantino og Wong Kar Wai. Badlands var tilnefnd til kanadísku Polaris tónlistarverðlaunananna árið 2011. Hungtai lýsir tónlistinni á þann veg að aðalpersónan Dirty Beaches sé einstaklingur sem ferðast um óravegu í leit að einhverju óræðu. Hann er útlagi sem á sér engan samastað.
Dómur um Badlands á Pitchfork:
http://pitchfork.com/reviews/albums/15281-badlands/
Það er svo íslenska rokksveitin Singapore Sling sem hitar upp fyrir Dirty Beaches þann 4.september í Kaldalóni.
Um Stopover Series:
Stopover Series er ný tónleikaröð sett saman og studd af Hörpu, Kimi Records, Kex Hostel, Icelandair, Hörpu, Gogoyoko og Reyka. Stopover Series hefur það markmið að bjóða upp á tónleika með reglulegu millibili með spennandi jaðarhljómsveitum að erlendum uppruna, ætlunin er að auðga tónlistarlíf borgarinnar og auka fjölbreytni. Boðið verður upp á 4-5 tónleika á hverju ári. Fyrirkomulagið er þannig háttað að hljómsveitir nýti sér kosti leiðarkerfis Icelandair og stoppi hér á leið sinni yfir Atlantshafið og nýti hér tímann til tónleikahalds og hvíldar. Munu þær njóta gestrisni Kex Hostels og fá að spila í frambærilegasta tónleikahúsi heims, Hörpu. Þeir sem standa að tónleikaröðinni eru Kimi Records, Kex Hostel, Icelandair, Harpa, Gogoyoko og Reyka Vodka.
Dagsetningar
| Date | Time | Concert | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 04.09.12 - Tuesday | 20:30 | Stopover Series #2 - Dirty Beaches - | Kaldalón | Harpa | 2.490 kr. |


