- Þú ert hér »
Gamla bíó

Gamla bíó er eitt þeirra gömlu fallegu húsa sem finna má í miðbæ Reykjavíkur en við vígslu þess árið 1926 var það talið eitt af glæsilegri húsum landsins. Einar Erlendsson arkitekt hefur verið stórhuga á sínum tíma þegar hann teiknaði húsið en kannski taka ekki margir eftir hinni sérstöku framhlið þess með jónískum súlum sem gefa húsinu virðulegt útlit. Peter Peterson dansku maður keypti lóð við Ingólfstræti árið 1924 undir húsið og teiknaði Einar Erlendsson húsið í samráði við Bíó-Petersen, eins og hann var þá kallaður. Húsið var fullbúið stærsta og glæsilegasta kvikmyndahús á landinu en þótti einnig henta vel til hljómleikahalds, þannig að í tvo áratugi var Gamla bío aðalhljómleikahús Reykjavíkur. Eigendaskipti urðu á húsinu í árslok 1939 þegar Petersen seldi það nýstofnuðu hlutafélagi Gamla bíó hf. sem starfrækti húsið til 1981 en þá keypti Íslenska óperan húsið og hafði þar starfsemi sína í 30 ár. Leikhúsmógúllinn, sem er alþjóðlegt leikhúsfyrirtæki, leigir nú húsnæðið af Íslensku óperunni og hyggst reka þar starfsemi undir heitinu Gamla bíó Leikhús.
Húsið var rekið sem kvikmyndahús til ársins 1980 en það hefur hýst fjöldan allan af menningarviðburðum eins og leiksýningar, tónleika og baráttufundi, fyrir utan að vera vera óperuhús Íslendinga síðastliðin 30 ár. Þannig hefur þetta hús verið samofið íslenskri menningarsögu og stór hluti af lífinu í miðbæ Reykjavíkur. Margir Reykvíkingar eiga minningar úr þessu húsi af fyrstu bíóferð eða ógleymanlegri upplifun af óperuflutningi. Húsið hefur spannað allt litróf menningar,frá Disney teiknimyndum og Looney Tunes til klassískra verka Mozarts og Verdis. Þetta hús mun halda áfram að skapa minningar og hafa áhrif á menningu borgarinnar með vönduðum sýningum og fjölbreyttu framboði af leiksýningum, tónleikum og öðru menningatengdum viðburðum.
Gamla Bíó
Ingólfstræti 2a, 101 Reykjavík
Sími: 563 4000
Netfang: midasala@gamlabio.is
Opnunartími miðasölu
Mánud-Miðvikud kl: 14:00-18:00
Fimmtud-sunnud: 14:00-18:00 og lengur á sýningarkvöldum.


