- Þú ert hér »
HSÍ
Handknattleikssamband Íslands var stofnað 11.júní árið 1957.
Handknattleikur barst til Íslands stuttu eftir 1920 og fyrstu kappleikirnir fóru fram um 1925. Fyrsta Íslandsmeistaramótið í handknattleik innanhúss var 1940 (karlar og konur) og í handknattleik utanhúss 1941 (konur) og 1942 (karlar). Íslendingar háðu sinn fyrsta landsleik í handknattleik utanhúss gegn Svíum 1950. Fyrsti landsleikur kvenna var 1956 í Osló. Íslendingar hafa tekið þátt í HM í handknattleik frá 1958 og í Evrópubikar-keppninni frá 1957 (karlar) og 1966 (konur). Heimsmeistaramótið í handknattleik HM var haldið á Íslandi árið 1995.
Ísland hefur síðustu ár tekið þátt í öllum stórmótum, EM, HM og Ólympíuleikum. Ísland fékk silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og fékk Bronz á Evrópumeistaramótinu í austurríki 2010. Það er því ljóst að karlalandslið Íslands er eitt sterkasta landslið í heiminum í dag
Núverandi formaður er Knútur G Hauksson
Handknattleikssamband Íslands
Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Sími: 514 4200, Fax: 514 4201
Netfang: hsi@hsi.is

