Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Iðnó við TjörninaIðnó var reist af Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur á uppfyllingu út í Tjörnina árið 1896 og tekið í notkun árið eftir. Fóru fyrstu leiksýningar þar fram í febrúar 1897 og var það Thorvaldsens-félagið sem stóð fyrir þeim.

Iðnó býður upp á fyrsta flokks veisluþjónustu við öll tilefni, svo sem brúðkaup, afmæli, fermingar og þegar bjóða á erlendum gestum upp á það besta í mat og drykk staðsett í einu fallegasta húsi Reykjavíkur. Iðnó og umhverfi þess er alveg einstakt.

Á annarri hæð Iðnó er veitingasalur sem rúmar allt að 60 manns í borðhald og 80-100 manns í standandi móttökur.

Á þriðju hæðinni er síðan setustofan, þar er gott að fá fordrykk ef borða á í veitingasal á annarri hæð eða njóta þess að fá sér kaffi og koníak í þessari yndislegu stofu, sem er full af gömlum munum. Svo hentar stofan mjög vel fyrir móttökur allt að 50 manns.

Birta á korti Iðnó
Vonarstræti 3, 101 Reykjavík
Sími: 562 9700
Netfang: idno@xnet.is

Opnunartími miðasölu
Mánudaga - föstudaga: 11:00 - 16:00
Miðasala opnar tveimur klukkustundum fyrir sýningu


© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash