- Þú ert hér »
Íslenska Óperan
Íslenska óperan hóf starfsemi sína undir lok 8. áratugar síðustu aldar og er því sannarlega ung að árum, ekki síst ef borið er saman við aldur rótgróinna óperuhúsa í Evrópu sem telja aldur sinn í árhundruðum. En aldrei hefur skort á atorku og metnað hjá þessari ungu stofnun og ætlar hún sér fastan og mikilvægan sess í íslensku menningarlífi til frambúðar.
Eitt helsta markmið Íslensku óperunnar hefur frá upphafi verið að byggja upp og styrkja atvinnugrundvöll fyrir íslenska söngvara, en starfsemin hefur auk þess fjölþættan listrænan og menningarlegan tilgang.
Íslenska Óperan hefur aðsetur í Hörpu.
Íslenska Óperan
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Sími: 528 5050
Netfang: midasala@harpa.is
Opnunartími miðasölu
Alla daga : 12:00 – 18:00 og fram að tónleikum
Opnunartími Miðasölusíma
Alla daga : 10:00 – 18:00

