- Þú ert hér »
EM Kvenna 2009

Ísland - Írland fimmtudaginn 30. október
Umspil fyrir lokakeppni EM 2009
Kvennalandslið Íslands og Írlands mætast á Laugardalsvelli fimmtudaginn 30. október kl. 18:10.
Um er að ræða síðari viðureign liðanna í umspili fyrir lokakeppni EM 2009, sem fram fer í Finnlandi.
Liðið sem hefur betur samanlagt úr viðureignunum tveimur tryggir sér farseðilinn í úrslitakeppnina. Þetta er án vafa stærsti leikur sem kvennalandslið hefur leikið í íslenskri knattspyrnusögu.
Stelpurnar okkar geta verið fyrsta íslenska A-landsliðið til að taka þátt í úrslitakeppni stórmóts. Með stuðningi þjóðarinnar getur þetta markmið náðst. Styðjum stelpurnar okkar til sigurs.
Allir á völlinn!
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikur | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 16.06.07 - Laugardagur | 14:00 | EM Kvenna 2009 - Ísland - Frakkland | Laugardalsvöllur | KSÍ | 1.000 kr. |
| 21.06.07 - Fimmtudagur | 21:15 | EM Kvenna 2009 - Ísland - Serbía | Laugardalsvöllur | KSÍ | 1.000 kr. |
| 21.06.08 - Laugardagur | 14:00 | EM Kvenna 2009 - Ísland - Slóvenía | Laugardalsvöllur | KSÍ | 1.000 kr. |
| 26.06.08 - Fimmtudagur | 16:30 | EM Kvenna 2009 - Ísland - Grikkland | Laugardalsvöllur | KSÍ | 1.000 kr. |
| 30.10.08 - Fimmtudagur | 18:10 | EM Kvenna 2009 - Ísland - Írland | Laugardalsvöllur | KSÍ | 1.000 kr. |


