- Þú ert hér »
Latabæjarhátíð í höllinni
Stúka: 3.900 kr.
Númeruð sæti í gömlu góðu stúkunni.
Pallar: 3.400 kr.
Ónúmeruð sæti. Baklausir bekkir aftast á góflinu sem koma í framhaldi af stúkunni, gott útsýni.
Salur: 2.900 kr.
Standandi svæði, nema við sviðið verða sérsvæði fyrir börn annars vegar og foreldra hins vegar þar sem setið er á mjúku gólfi.
Í kringum ramp sem kemur út frá sviðinu verður búið til sérstakt barnasvæði, sem myndar nokkurs konar hálfhring. Því verður skipt í þrjú hólf eftir aldri og þar geta börnin sest niður og notið tónleikanna með jafnöldrum sínum í mikilli nánd við listamennina og fjörið á sviðinu. Ekkert skyggir á útsýni þeirra og á réttu augnablikunum geta þau staðið á fætur og hoppað og skoppað saman með íbúum Latabæjar.
Starfslið tónleikanna á þessum svæðum verður þaulreyndir leikskólastarfsmenn, sem munu fylgjast vel með öllum börnunum og vera þeim innan handar. Það er engin skylda að setja börnin sín á barnasvæðið en foreldrar hafa þetta val. Fyrir aftan hvert hólf í barnasvæðinu er annað hólf fyrir foreldra viðkomandi barna. Er ætlast til þess að þeir sitji líka svo að standandi gestir fyrir aftan þessi svæði sjái vel á sviðið. Á öllum þessum svæðum verður mjúkt gólf til að sitja á.


