Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Leikfélag Akureyrar

Leikfélag Akureyrar

SamkomuhúsiðLeikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Það er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við Menntamálaráðuneytið. Saga Leikfélagsins spannar nú nær heila öld, en félagið varð atvinnuleikhús árið 1973.

Starfsemin er í hjarta Akureyrar í fallegu nýuppgerðu leikhúsi, Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í sæti. Samkomuhúsið er hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum. Þann 16. febrúar 2006 opnaði leikhúsið nýtt leikrými sem það nefnir einfaldlega Rýmið. Rýmið er svartur kassi sem hægt er að nýta á fjölda ólíka vegu. Leikhúsið sýnir einnig í öðrum rýmum bæði innan bæjarins en einnig í Reykjavík. Verkefnaskrá leikhússins hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt, klassísk íslensk og erlend verk, ný íslensk og erlend verk, barnaleikrit og söngleikir.

Birta á korti Leikfélag Akureyrar
Hafnarstæti 57, 600 Akureyri
Sími: 460 0200
Netfang: midasala@leikfelag.is

Opnunartími miðasölu 
Mánudaga – föstudaga: 13:00 - 19:00
Miðasala opnar kl. 17.00 á sýningardögum


© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class