Bollywood

Veisluturninn í samvinnu við matreiðslubókahöfundinn og fjöllistakonuna Yesmine Olsson kynna Bollywood – matarveislu með söng- og dansatriðum á heimsmælikvarða í anda Indverskra Bollywoodmynda. Um er að ræða glæsileg sýning með einstaklega bragðgóðum indverskum og arabískum mat sem matreiðslumeistarar Veisluturnsins galdra fram upp úr matreiðslubókum Yesmine, Framandi & Freistandi.
Uppselt var á allar 6 sýningarnar í október og nóvember.
Tuttugasta hæðin í Turnininum er eins og sniðinn fyrir sýningu sem þessa enda hátt til lofts og vítt til vegga og allt er skreitt í litríkum indverskum stíl. Maturinn er borinn fram á mitt borðið en snúningsdiskur sér til þess að allir finni eitthvað gómsætt við sitt hæfi.
Matseðillinn samanstendur af fimm forréttum og þremur aðalréttum ásamt úrvali meðlætis og spennandi eftirrétta í lokin.
Yesmine Olsson leikstýrði sýningunni og leikur aðalhlutverkið en alls koma 12 manns að sýningunni sjálfri.
Verð aðeins kr. 8.900- Innifalið matur og sýning. Borðhald og sýning hefst kl. 20:00 og stendur til 23:00 mæting 19:30
Ekki láta þessa einstöku sýningu framhjá þér fara!
Nánari upplýsingar í síma: 575-7500 eða á pantanir@veisluturninn.is
Matseðill
Forréttir:
Samsosa með mangochutney og grænu döðluchutney
Papaya-og granateplasalati
Spínatsalat með furuhnetum og rúsínum
Glóðasteikt tandooribleikja með coriander- og mynduchutney
Kjúklinga kibbe með fíkjuchutney
Nannbrauð með pistasium og kókos
Aðalréttur:
Ofnbakaður Harissa- hunangskjúklingur með raitha sósu
Indverskt kryddað lambalæri
Lambakoftas með tómat-og broddkúmensósu
Aloo Dam karrý kartöflur með chili og engifer
Rúbínhrísgrjón
Eftirréttir:
Heit súkkulaði döðluterta með karamellusósa
Súkkulaðitrufflur með chili og saffran
Lavander créme bruleé
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 25.09.09 - Föstudagur | 20:00 | Bollywood - Sýning - UPPSELT | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 02.10.09 - Föstudagur | 20:00 | Bollywood - Sýning - UPPSELT | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 09.10.09 - Föstudagur | 20:00 | Bollywood - Sýning | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 24.10.09 - Laugardagur | 20:00 | Bollywood - Aukasýning - UPPSELT | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 07.11.09 - Laugardagur | 20:00 | Bollywood - Sýning - UPPSELT | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 13.11.09 - Föstudagur | 20:00 | Bollywood - Síðasta sýning | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 23.01.10 - Laugardagur | 20:00 | Bollywood - Sýning | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 06.02.10 - Laugardagur | 20:00 | Bollywood - sýning - UPPSELT | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 26.02.10 - Föstudagur | 20:00 | Bollywood - sýning - UPPSELT | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 12.03.10 - Föstudagur | 20:00 | Bollywood - sýning - UPPSELT | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |
| 09.04.10 - Föstudagur | 20:00 | Bollywood - sýning | Veisluturninn | veisluturninn | 8.900 kr. |


