Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

ERT ÞÚ Skepna?

Þann 10. September mun leikritið Skepna verða frumsýnt í Leikhúsbatteríinu. Skepna er eftir Daniel MacIvor og Daniel Brooks.

Leikritið er einleikur og fer Bjartmar Þórðarson með öll hlutverk sýningarinnar. Guðjón Þorsteinn Pálmarsson sér um leikstjórn.

Leikritið endurspeglar og tekur á mörgum af myrkustu hliðum manneskjunnar. Sögð er saga unglingspilts sem fremur hræðilegan glæp. Hann murkar líftóruna úr föður sínum með því að búta hann hægt og rólega í sundur í kjallaranum heima hjá sér. Þessi hræðilega saga fer að birtast á fleiri stöðum og fer að minna á smitsjúkdóm. Er þetta veira, eða er illskan alltaf til staðar? Af hverju sækjum við í myrkrið? Vitum við hvenær við erum að fóðra skepnuna í okkur? Þetta magnaða verk varpar fram áleitnum spurningum um eðli mannsins og skepnuna sem býr í okkur öllum.

Bjartmar Þórðarson útskrifaðist sem leikari frá Webber Douglas Academy of Dramatic Art í London árið 2004. Hann hefur leikið í fjölda leiksýninga hérlendis sem erlendis. Má þar á meðal nefna Túskildingsóperuna og Syngjandi í rigningunni hjá Þjóðleikhúsinu og Caligula í Battersea Arts Centre, ásamt ýmsum sjónvarpsþáttum og auglýsingum. Einnig útskrifaðist hann úr MA-námi í Leikstjórn frá Rose Bruford College árið 2008 og hefur eftir útskrift leikstýrt Mr. Kolpert eftir David Gieselmann í Greenwich Playhouse og aðstoðarleikstýrt "Ég heiti Rachel Corrie" í Borgarleikhúsinu.

Guðjón Þorsteinn Pálmarsson útskrifaðist hann frá leiklistardeild ArtsEd í Lúndúnum árið 2003. Fyrir jólin 2008 leikstýrði Guðjón sýningunni Lápur, Skrápur og jólaskapið hjá LA og var sú sýning tilnefnd til Grímunnar sem Barnasýning ársins. Guðjón var tilnefndur sem besti leikstjóri á ACT NOW hátíðinni 2005 fyrir sýninguna Allra Kvikinda Líki.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
10.09.09 - Fimmtudagur 20:00 Skepna - Frumsýning Leikhúsbatteríið Leikhúsbatteríið 2.200 kr.
11.09.09 - Föstudagur 20:00 Skepna - Leiksýning Leikhúsbatteríið Leikhúsbatteríið 2.200 kr.
18.09.09 - Föstudagur 21:00 Skepna - Leiksýning Leikhúsbatteríið Leikhúsbatteríið 2.200 kr.
04.10.09 - Sunnudagur 18:00 Skepna - Leiksýning Leikhúsbatteríið Leikhúsbatteríið 2.200 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash