Ókyrrð

Líkamlegur ótti er mönnum eðlislægur, rétt eins og öðrum skepnum, og gegnir því nauðsynlega hlutverki að stýra okkur út úr aðsteðjandi hættum. Erfiðara er að úrskurða um hagnýtt gildi ýmissa hugarburða og vitrana sem herja á okkur, halda fyrir okkur vöku, en stuðla jafnframt að doða og fælni við hluti, dýr og annað fólk. Það er eitthvað sem vofir yfir en við getum ekki vitað hvað það er.
Ókyrrð fjallar tilraunir okkar til að hafa stjórn á tilfinningum, um innra líf og ofvöxt ímyndunaraflsins. Sýningin Ókyrrð er samin af leikhópnum.
Leikendur: Ragnar Ísleifur Bragason, Margrét Bjarnadóttir, Friðgeir Einarsson
Ljósahönnun: Björn Elvar Sigmarsson
Hljóðheimur: Kristján Loðmfjörð
Leikstjórn: Friðgeir Einarsson
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 01.10.09 - Fimmtudagur | 20:00 | Ókyrrð - Leiksýning | Leikhúsbatteríið | Leikhúsbatteríið | 1.500 kr. |


