Sailesh

Fyndnasti gríndávaldur heims, hinn mikli Íslandsvinur Sailesh, snýr aftur 19. mars með sína einstöku og sjúklega fyndnu sýningu. Sailesh og skemmtanir hans eru Íslendingum að góðu kunn, þar sem hann hefur komið hingað fjórum sinnum áður og haldið fjölda sýninga um allt land. Í heildina eru þær orðnar rúmlega 20 talsins og hefur hann selt hátt í 25.000 miða samtals hérlendis, sem gerir hann væntanlega að einum allra vinsælasta erlenda skemmikrafti sem hefur komið fram á Íslandi.
Sýningin er síbreytileg og byggir á þátttöku og viðbrögðum áhorfenda, þannig að maður veit aldrei hvað gerist næst. Sailesh er duglegur að upphugsa ný atriði og lofar því að koma með fjölda nýrra sketsa í farteskinu, mörg hver sérhönnuð fyrir Íslendinga, enda kappinn farinn að þekkja íslenskan húmor vel.
Miðasala á leikritið
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 19.03.10 - Föstudagur | 20:00 | Sailesh - Sýning | Broadway | Bravo | 2.500 kr. |

