Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Nemendaleikhús Listaháskólans sýnir nýtt íslenskt verk,
Bráðum hata ég þig eftir Sigtrygg Magnason,

Sýnt er í Smiðjunni, leikhúsi Listaháskólans við Sölvhólsgötu.

Á bæ við Kolugljúfur í Víðidal hittast fjórar systur við jarðarför móður sinnar, sem beðið hafði dauðans í hálfan annan áratug. Halla hefur ekki haft samband í þrjú ár, Snæfríður hefur ekki talað við neinn jafn lengi. Steinunn þráir að vera snert og Anna vill komast burt. Halla kemur með gest, sem setur þögult sorglegt jafnvægið í uppnám. Kolugljúfur. Fallegur staður. Já. Fallegur staður.

Bráðum hata ég þig er annað verkefni vetrarins en fyrsta sýning Nemendaleikhússins, Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol, var sýnd fyrir fullu húsi í haust en uppselt var á allar sýningar.

Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir, búninga-og sviðsmyndahönnum er í höndum Axels Hallkels Jóhannessonar, Egill Ingibergsson sér um ljósahönnun og tæknistjórn og Brynja Björnsdóttir aðstoðar við leikmynd og tæknivinnu. Um hljóðmynd sér Högni Egilsson, tónsmíðanemi í tónlistardeild LHÍ.

Nemendaleikhúsið í vetur skipa:
Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Ævar Þór Benediktsson.

Ath. Miða þarf að nálgast í miðasölu Nemendaleikhúss Listaháskólans sýningardaga frá kl. 18.00-20.00.

Sýningin er bönnuð innan 16 ára

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
21.01.10 - Fimmtudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - Frumsýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
23.01.10 - Laugardagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 2. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
27.01.10 - Miðvikudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 3. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
28.01.10 - Fimmtudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 4. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
29.01.10 - Föstudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 5. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
30.01.10 - Laugardagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 6. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
03.02.10 - Miðvikudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 7. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
04.02.10 - Fimmtudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 8. sýning -UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
05.02.10 - Föstudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 9. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
06.02.10 - Laugardagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 10. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
10.02.10 - Miðvikudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 11. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
11.02.10 - Fimmtudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 12. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
12.02.10 - Föstudagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 13. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.
13.02.10 - Laugardagur 20:00 Bráðum hata ég þig - 14. sýning - UPPSELT Smiðjan Nemendaleikhús LHÍ 1.500 kr.

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash