- Þú ert hér »
Danstvennan Taka #2

Danstvennan Taka #2 verður haldin í Hafnarfjarðarleikhúsinu dagana 13. og 15. apríl næstkomandi.
Á dagskrá eru verkin 900 02 og SHAKE ME Bæði verkin voru sýnd við góðar viðtökur áhorfenda fyrr í vetur og því hefur verið ákveðið að efna til örfárra endursýninga.
900 02 er sviðsverk sem er samið í kringum tónverkið The Disintegration Loops eftir William Basinski. verkið leiðir okkur með þremur dáleiðandi ferlum í átt að tóminu. Verk eftir Leif Þór Þorvaldsson og Sigríði Soffíu Níelsdóttur
Í verkinu Shake Me gerir Hreyfiþróunarsamsteypan dramatíska tilraun til að drepa sig. Við deyjum úr ást, af sæmd, alveg óvart, fyrir misskilning, af annarra manna völdum eða einfaldlega af því að okkur langar það. Er ennþá hægt að upplifa raunverulegar tilfinningar í daglegu lífi eða þurfum við að búa þær til? Að þessu sinni leitum við að yfirvofandi dauða og ódauðlegri ást í harmleikjum William Shakespeare.
Persónur og leikendur Ásgerður Gunnarsdóttir: Júlíus Sesar, Laertes, Óþelló, Tamara Katrín Gunnarsdóttir: Kassíus, Kládíus, Júlía, Títus, Kordelía Melkorka Sigríður: Hamlet, Rómeó, Lavinia, Lér, Kaska Ragnheiður S. Bjarnarson: Brútus, Geirþrúður, Desdemóna, Satúrníus Hannes Óli Ágústsson - leikmaður
Aðstoð við gerð sýningar: Víkingur Kristjánsson Tileinkað MJ, Pinu og Merce
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 13.04.10 - Þriðjudagur | 20:00 | Danstvennan Taka #2 - | Hafnarfjarðarleikhúsið | Hafnarfjarðarleikhúsið | 1.500 kr. |
| 15.04.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Danstvennan Taka #2 - | Hafnarfjarðarleikhúsið | Hafnarfjarðarleikhúsið | 1.500 kr. |

